Námskeið í auknum ökuréttindum (meirapróf)

730.000 kr.

Námskeið fyrir aukin ökuréttindi sem felur í sér grunnnám, framhaldsnám og verklega kennslu. Hentar þeim sem sækjast eftir ökuréttindum fyrir vörubíl, hópbifreið eða leigubíl. Bóklegt nám þarf að ljúka áður en verkleg kennsla hefst. Öll námsgögn fylgja.

Námið skiptist í þrjá meginhluta: grunnnám, framhaldsnám og verklegt nám. Öll sækja grunnnám óháð því hvaða ökuréttindi eru valin, en framhalds- og verklegt nám miðast við viðkomandi réttindaflokk.

Hægt er að sækja um og hefja ökunám allt að sex mánuðum áður en lágmarksaldri fyrir réttindin er náð. Ökuréttindin sjálf taka gildi þegar viðkomandi nær þeim aldri. Sjá nánar um aldursmörk og reglur hér.

Grunnnám – fyrir alla þátttakendur

  • Umferðafræði – 12 kennslustundir

  • Umferðasálfræði – 12 kennslustundir

  • Skyndihjálp – 16 kennslustundir

  • Bíltækni – 12 kennslustundir

Framhaldsnám – eftir réttindaflokki

  • Stór ökutæki – 32 kennslustundir

  • Ferða- og farþegafræði – 16 kennslustundir

Bóklegt nám þarf að vera lokið áður en verkleg kennsla hefst. Námið er skipulagt samkvæmt gildandi námskrá fyrir aukin ökuréttindi. Fyrir nánari upplýsingar um innihald og skipulag, má kynna sér námskrána nánar hér.

Scroll to Top